Forsendur kjarasamninga brostnar

Verðbólga mældist 5,6% í ágúst og hefur hún ekki mælst hærri í tvö ár. Verðbólgan er því komin yfir 4,7% viðmið kjarasamninganna og þar með er ljóst að verðlagsforsendur þeirra eru brostnar. Formenn aðildarfélaga SGS komu saman til upplýsinga- og samráðsfundar á dögunum til að ræða meðal annars forsenduákvæði kjarasamninga og stöðuna sem nú blasir við launafólki.  Ljóst er að kjaramálin verða í brennidepli á næsta formannafundi SGS, sem boðaður hefur verið 10. september nk., þar sem farið verður yfir stöðuna og næstu skref metin. Til viðbótar má geta þess að stjórn og trúnaðarráð Framsýnar mun funda næsta mánudag um stöðuna sem komin er upp varðandi forsendur gildandi kjarasamninga.

Deila á