Starfsmannafélag Húsavíkur í samráði við Norðurþing hefur samþykkt að færa Borgarhólsskóla á Húsavík ákveðið fjármagn til kaupa á búnaði til að efla þroska og færni barna við leik og störf í grunnskólanum. Tilgangurinn með gjöfinni er ekki síst að efla enn frekar allt skólastarf í Borgarhólsskóla. Félagið hafði áður fært Grunnskólanum í Lundi og Leikskólanum Grænuvöllum sambærilega gjöf.
Fjármagnið kemur úr Starfsmenntasjóði Starfsmannafélags Húsavíkur sem fjármagnaður er með framlögum frá sveitarfélaginu Norðurþingi. Á meðfylgjandi mynd er Hermína Hreiðarsdóttir formaður STH og Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skólastjóri Borgarhólsskóla. Myndin var tekin við afhendinguna í dag.