Samningaviðræður í gangi

Viðræður eru hafnar milli Framsýnar og Fjallalambs hf.  varðandi kjör starfsfólks í sláturhúsi fyrirtækisins á Kópaskeri í haust. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hafa fjársterkir aðilar samþykkt að koma að rekstri fyrirtækisins með auknu hlutafé. Um er að ræða afskaplega ánægjulega frétt. Hefð er fyrir því að fulltrúar frá Framsýn og Fjallalambi setjist niður á haustin og semji um kaup og kjör starfsmanna fyrirtækisins við sauðfjárslátrun það haustið. Fulltrúar samningsaðila stefna  að því að klára viðræðurnar áður en sláturtíðin hefst í byrjun september. Töluverð óvissa hefur verið með áframhaldandi rekstur Fjallalambs og margir hafa haft áhyggjur af því að reksturinn legðist af í haust, en svo verður ekki, þökk sé fjársterkum aðilum sem ákveðið hafa að veðja á frekari rekstur Fjallalambs.

Deila á