Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð

Mbl segir frá því í dag og reyndar Morgunblaðið líka að fjölmargir tilvonandi og nýbakaðir foreldrar hafi að undanförnu vakið athygli á örðugum samskiptum sínum við Fæðingarorlofssjóð og lýsa margir reynslu sinni sem vonlausri baráttu við ópersónulegt kerfi þar sem lítill skilningur ríki. Sjá fréttina á mbl.is https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/07/27/vonlaus_baratta_vid_faedingarorlofssjod/

Skrifstofa stéttarfélaganna á Húsavík tekur heilshugar undir með þeim fjölmörgu sem gert hafa athugasemdir við afgreiðslu Fæðingarorlofssjóðs og getið er um í frétt mbl.is. Dæmi eru um að félagskonur sem hafi veikst á meðgöngu hafi leitað aðstoðar hjá starfsmönnum skrifstofunnar vegna samskipta þeirra við Fæðingarorlofsjóðs þar sem þær telja sig mæta miklu skilningsleysi.

Deila á