Örnám í frumkvöðlastarfi – Háskólinn á Bifröst

Háskólinn á Bifröst kynnir nýtt örnám í frumkvöðlastarfi sem kennt er á ensku og er sérhannað fyrir þá sem hafa ekki íslensku að móðurmáli, en vilja taka fyrstu skrefin í háskólanámi. Námsleiðin Frumkvöðlastarf (e. Entrepreneurship) samanstendur af þremur samtengdum fjarnámskeiðum: Frumkvöðlastarf og nýsköpun, Frumkvöðlastarf á Íslandi  – að koma rekstri á fót og hagnýt hönnunarhugsun (samtals 18 ECTS), sem kennd verða haustið 2026. Kennsla hefst 24. ágúst og stendur til 4. desember 2026.

Í náminu öðlast þátttakendur innsýn í íslenska nýsköpunar- og sprotaumhverfið og fá að kynnast verkfærum sem stuðla að eigin frumkvöðlavirkni. Félagsmenn Framsýnar sem sækja námið eiga rétt á styrkjum hjá félaginu.

Námsleiðinni er stjórnað af frumkvöðlum sem búa yfir mikilli reynslu af nýsköpun og rekstri. Þau eru Fida Abu Libdeh stofnandi GeoSilica Iceland, Arnar Sigurðsson sérfræðingur í skapandi nýsköpun og Michael Hendrix stofnandi Huldunótna á Íslandi og fyrrverandi yfirmaður IDEO, USA.

Markmið námsleiðarinnar er að auðvelda þeim sem eru ekki íslenskumælandi að hefja háskólanám og tengjast íslensku samfélagi. Námskeiðin veita nemendum tækifæri til að þróa eigin viðskiptahugmyndir, nýta hönnunarhugsun í nýsköpun, kynnast íslensku sprotaumhverfi og stuðningsúrræðum og öðlast innsýn í fjármögnun og rekstur eigin fyrirtækis. Þannig styrkja þátttakendur færni sína til þátttöku á íslenskum vinnumarkaði.

  • Heiti námsleiðar: Frumkvöðlastarf á Íslandi (e. Entrepreneurship)
  • Tungumál: Enska
  • Fjarnám: Þrjú samtengd fjarnámskeið, samtals 18 ECTS einingar
  • Tímabil: 24. ágúst – 4. desember 2026
  • 24. ágúst – 9. október to 2026:
    Frumkvöðlastarf og nýsköpun
  • 19. október  to 4. Desember 2026:
    Frumkvöðlastarf á Íslandi
  • 24. ágúst – 4. desember:
    Hönnunarhugsun
  • Skráningargjald: 100.000 kr. (flest stéttarfélög styrkja félagsmenn í námi)

Skráning er opin til 9. ágúst 2026. Nánari upplýsingar og skráning er að finna á vefsíðu Háskólans á Bifröst (íslenskri og enskri útgáfu).

Allar frekari upplýsingar um námsleiðina veitir Anna Hildur Hildibrandsdóttir, fagstjóri skapandi greina (annah@bifrost.is).

https://www.bifrost.is/namid/felagsvisindadeild/entrepreneurship

English Version: New micro-credential in entrepreneurship

Bifröst University announces a new micro-credential in entrepreneurship taught in English, specifically designed for immigrants and other students who do not speak Icelandic as a first language. This program helps participants take their first steps toward higher education while exploring Iceland’s startup and innovation ecosystem. The “Entrepreneurship in Iceland” micro-credential consists of three connected online courses, totaling 18 ECTS, offered during the autumn 2026 semester. It is led by experienced practitioners: Fida Abu Libdeh (founder of GeoSilica Iceland), Arnar Sigurðsson (innovation expert), and Michael Hendrix (former IDEO executive and founder of Huldunótna in Iceland).

In this program, students develop key entrepreneurial skills and networks. They will learn to develop and validate business ideas, apply design thinking to innovation, learn about Iceland’s startup support structures, and gain insight into financing and operating their own business. The aim is to make higher education accessible to those without Icelandic language skills, thus bridging them into university studies.

  • Language: English
  • Format: Three connected online courses (total 18 ECTS)
  • Schedule: August 24 – December 4, 2026

The micro-credential is taught through three courses during the autumn semester of the 2026-2027 school year:

Registration is open until August 9, 2026. More information and application details are available on Bifröst University’s website (Icelandic and English).

Media inquiries can be directed to Anna Hildur Hildibrandsdóttir, (annah@bifrost.is).

Further information: https://www.bifrost.is/namid/felagsvisindadeild/entrepreneurship

  Bifröst png.png bifrost.is  Fyrirvari / Disclaimer   Anna Hildur Hildibrandsdóttir
Fagstjóri skapandi greina // Programme Leader for Creative Industries
Tölvupóstur // E-mail. annah@bifrost.is
Deila á