Stefán Stefánsson stjórnarmaður í Framsýn fór og verslaði neyðarkall af Björgunarsveitinni Stefáni í Mývatnssveit fyrir hönd Framsýnar stéttarfélags. Hér er hann ásamt formanni sveitarinnar, Kristjáni Steingrímssyni. Neyðarkallinn var til sölu víða um land í nóvember.
Í ár fagnar Neyðarkall björgunarsveitanna 20 ára afmæli, en átakið hófst árið 2006. Í tvo áratugi hefur almenningur, fyrirtæki og félagasamtök sýnt björgunarsveitunum ómetanlegan stuðning með kaupum á Neyðarkalli og þannig lagt sitt af mörkum til öflugs björgunar- og slysavarnastarfs um allt land.
Árlegt fjáröflunarátak Neyðarkallsins er ein af mikilvægum stoðum í starfi björgunarsveita og slysavarnadeilda. Allur ágóði af sölunni rennur til starfsins og nýtist meðal annars til kaupa á búnaði, þjálfunar sjálfboðaliða og eflingar viðbragðsgetu.
Framsýn er stoltur stuðningsaðili enda verslað Neyðarkall af björgunarsveitunum í Þingeyjarsýslum til fjölda ára.