Um síðustu helgi kom formaður Verkalýðsfélags Suðurlands, Guðrún Elín Pálsdóttir, í heimsókn ásamt fylgdarliði í höfuðstöðvar stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum á Húsavík. Fengu þau góða kynningu á starfi Framsýnar auk þess sem þau spurðu mikið út í atvinnulífið á svæðinu. Virkilega fróðleiksfús hópur og reyndar vel inn í málefnum svæðisins. Það er alltaf ánægjulegt að taka á móti góðum gestum og samstarfsfólki úr verkalýðshreyfingunni.