Glæsileg afmælishátíð

Verkalýðsfélag Þórshafnar stóð fyrir glæsilegri afmælishátíð í gær á afmælisdegi félagsins, en félagið varð 100 ára í gær, 16. júlí. Boðið var upp á hátíðardagskrá í félagsheimilinu á Þórshöfn auk þess sem nokkrir gestir fluttu stutt ávörp í tilefni tímamótana. Boðið var upp á kvöldverð og tertu auk þess sem skemmtidagskrá stóð yfir fram eftir kvöldi.

Stéttarfélögin, Þingiðn, Framsýn og STH ásamt Verkalýðsfélagi Þórshafnar hafa í gegnum tíðina átt mjög gott samstarf um verkalýðsmál. Fulltrúar Framsýnar og Þingiðnar voru að sjálfsögðu á svæðinu og færðu VÞ afmælisgjöf auk þess sem formaður Framsýnar flutti stutt ávarp í tilefni tímabótana.
Þessir formenn létu sig ekki vanta á afmælisfagnaðinn, auk Anetu formanns Verkalýðsfélags Þórshafnar má sjá Tryggva formann Einingar-Iðju og Hjördísi Þóru formann Afls. Hinir jólasveinarnir tveir eru þekktir og rúmlega það.
Aneta formaður og Svala varaformaður fóru yfir sögu félagsins á afmælisfagnaðinum.

Þrátt fyrir að hátíðarhöldin færu afar vel fram voru dyraverðir hafðir til taks ef með þyrfti. Glæsilegir drengir.
Deila á