Í dag, 16. júlí, fagnar Verkalýðsfélag Þórshafnar 100 ára afmæli sínu. Aldarafmæli félagsins hefur verður fagnað á ýmsan hátt og í dag, á sjálfan afmælisdaginn, býður félagið upp á fjölskyldusýningar í íþróttahúsinu kl. 14:00 og 16:00, veitingar í Holtinu kl. 18:30 og tónleika með Hundi í óskilum kl. 21:00. Nánari dagskrá má sjá hér. Fulltrúar frá aðildarfélögum Skrifstofu stéttarfélaganna á Húsavík eru komnir austur til að gleðjast með heimamönnum enda mjög gott samstarf milli félaganna í Þingeyjarsýslum. Það verður eitthvað.
Framsýn, Þingiðn og Starfsmannafélag Húsavíkur óska félagsmönnum, stjórn og starfsfólki Verkalýðsfélags Þórshafnar innilega til hamingju með þennan merka áfanga. Megi félagið halda áfram að vaxa og dafna um ókomin ár.