Fyrir nokkru fauk öryggishurð í fundarsal stéttarfélaganna upp í vondu veðri og eyðilagðist. Hurðin tengist viðburðum í salnum komi til þess að rýma þurfi húsnæðið í skyndi. Í morgun voru mætir vaskir menn til að setja upp nýja og glæsilega hurð. Þetta eru feðgarnir, Þorvaldur Ingi Björnsson og Sigurjón Darri Þorvaldsson.