Þessar frábæru og einstöku konur, Ása Gísladóttir, Guðrún Kristín Jóhannsdóttir og Regína Sigurðardóttir tóku tal saman fyrir utan Skrifstofu stéttarfélaganna í góða veðrinu sem er reyndar spáð næstu daga. Þær eiga það allar sameiginlegt að hafa verið mjög virkar í alls konar félagsstörfum á Húsavík og skilað góðu og mikilvægu starfi fyrir samfélagið s.s. hvað varðar starfsemi Leikfélags Húsavíkur og þá hefur Regína verið mjög virk í starfi Félags Eldri borgara. Ekki er ólíklegt að þær hafi verið að ræða menningu- og listir þegar myndin var tekinn enda mjög svo ábúðarfullar á svipinn.