Starfsmennt er fræðslusetur fyrir opinbert starfsfólk og opinberar stofnanir. Hlutverk Starfsmenntar er að bjóða opinberu starfsfólki aðgang að starfs- og símenntun til að efla hæfni sína og auka öryggi í starfi. Einnig aðstoðar Starfsmennt opinberar stofnanir við ýmis mannauðstengd málefni. Þjónusta Starfsmenntar er án endurgjalds fyrir ákveðna hópa þar sem samið hefur verið um greiðslur annað hvort í kjarasamningum eða samstarfssamningum við sjóði.
Þjónusta við einstaklinga
- Aðgangur að fjölbreyttum námskeiðum og námi bæði innan framhaldsfræðslu og framhaldsskóla.
- Samtal við náms- og starfsráðgjafa til að ræða ýmsar leiðir til starfsþróunar.
- Ferða- og dvalarstyrkir eru í boði fyrir ákveðna hópa sem þurfa að sækja nám eða námskeið utan sinnar heimabyggðar.
Þjónusta við stofnanir
- Aðstoð við að greina fræðsluþarfir og hæfnikröfur starfa.
- Aðstoð við að setja upp fræðsluáætlun og koma henni í framkvæmd.
- Spjall um ýmis konar mannauðstengd málefni.