Fyrr í mánuðinum fengu félagsmenn Starfsmannafélags Húsavíkur tengil á könnunina, „Sveitarfélag ársins“ ásamt öllum þeim félagsmönnum innan aðildarfélaga BSRB sem aðild eiga að Mannauðssjóðnum Heklu og könnunin nær til. Það eru þeir sem eru í meira en 30% starfshlutfalli hjá sveitarfélagi. Stefnt er að því að ljúka könnuninni síðar í þessum mánuði. Svarhlutfallið hjá félagsmönnum Starfsmannafélags Húsavíkur í dag er tæplega 20% en við þurfum að ná að lágmarki 35% þátttöku svo könnunin teljist marktæk . Stjórn STH skorar á félagsmenn að taka þátt í könnuninni. Þá má geta þess að dregin verða út nöfn í könnuninni og hljóta viðkomandi aðilar vinninga upp á kr. 15.000,-. Ekki missa af því. Ef fólk finnur ekki póstinn með tenglinum eða kannast ekki við að hafa fengið hann er hægt að senda póst á Tómas Bjarnason hjá Gallup og hann sendir viðkomandi nýjan tengil á könnunina tomas.bjarnason@gallup.is. Koma svo ágætu félagar, verum með í þessari könnun.