Aðalsteinn Árni kjörinn stjórnarformaður

Ársfundur Landsmenntar starfsmenntasjóðs fór fram 4. júní. Í dag var síðan komið að því að halda fyrsta stjórnarfundinum eftir ársfundinn. Að venju var gengið frá kjöri á formanni og varaformanni sjóðsins til næstu tveggja ára. Kosningu hlutu Aðalsteinn Árni Baldursson sem stjórnarformaður frá Starfsgreinasambandi Íslands og Maj-Britt Hjördís Briem varaformaður en hún kemur frá Samtökum atvinnulífsins. Aðrir í stjórn eru Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir og Guðrún Elín Pálsdóttir frá Starfsgreinasambandi Íslands en þær báðar formenn í aðildarfélögum SGS.

Arnar Sigurmundsson og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir sem setið hafa í stjórn Landsmenntar fyrir hönd Samtaka atvinnulífsins um áratuga skeið létu af störfum á síðasta ársfundi. Í þeirra stað koma Lilja Björg Arngrímsdóttir mannauðsstjóri hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum og Ólína Laxdal hótelstjóri á Hótel Hildibrandi á Neskaupstað.

Deila á