Framsýn stéttarfélag hefur ákveðið að styrkja Ungmennafélagið Austra á Raufarhöfn um kr. 250.000,- til kaupa á líkamsræktartækjum í heilsuræktarsalinn sem er í húsnæði sundlaugarinnar á Raufarhöfn. Undanfarið hefur verið unnið að því að endurnýja tæki og tól í salnum enda tækin komin til ára sinna. Að sögn Birnu formanns Austra kemur styrkur Framsýnar að góðum nótum enda heimamenn duglegir við að notast við heilsuræktarsalinn. Framsýn skorar á fyrirtæki og stofnanir að styðja við bakið á Austra en þó nokkrir aðilar hafa lagt verkefninu lið með fjárframlögum enda kostnaðarsamt að endurnýja tækin. Semi dæmi um góða styrki til verkefnisins má nefna styrk frá frumkvæðissjóði Brothættra byggða kr 1.200.000,-. Sjá nánar hér: https://www.ssne.is/is/um-ssne/frettir/uthlutad-var-i-annad-sinn-i-tilraunaverkefninu-brothaettar-byggdir-ii-i-vikunni?fbclid=IwY2xjawSTnslleHRuA2FlbQIxMQBzcnRjBmFwcF9pZBAyMjIwMzkxNzg4MjAwODkyAAEezOVbXNK0Fbx60FISCDEe83r20cOzzJjIPbwDf8iN2TIInE5BzZnSt0MGFKM_aem_xcrbEvbeSGC-bCYWDwCzuA.
Á meðfylgjandi mynd eru fulltrúar Framsýnar, Aðalsteinn Árni Baldursson, Ósk Helgadóttir og Nanna Steina Höskuldsdóttir sem öll sitja í stjórn félagsins ásamt formanni Austra, Birnu Björnsdóttur þegar gjöfin var afhent síðasta föstudag í sumarkaffi Framsýnar í Félagsheimilinu Hnitbjörg.