Framsýn er umhugað um starfsmenntun félagsmanna. Á árinu 2025 fengu 358 félagsmenn greiddar kr. 28.508.350,- í einstaklingsstyrki frá fræðslusjóðum í endurgreiðslur vegna náms eða námskeiða. Námsstyrkir árið 2025 skiptast þannig milli fræðslusjóða sem Framsýn á aðild að:
Alls fengu 203 félagsmenn styrki frá Landsmennt kr. 16.349.020,-
Alls fengu 6 félagsmenn styrki frá Sjómennt kr. 753.752,-
Alls fengu 48 félagsmenn styrki frá Sveitamennt kr. 3.540.860,-
Alls fengu 44 félagsmenn styrki frá Ríkismennt kr. 3.151.562,-
Alls fengu 42 félagsmenn styrki frá SVS-Fræðslusjóður kr. 3.866.426,-
Alls fengu 15 félagsmenn styrki frá Fræðslusjóði Framsýnar kr. 846.730,-
Samtals fengu félagsmenn því greiddar kr. 28.508.350,- í námsstyrki á árinu 2025. Fræðslusjóðirnir eru fjármagnaðir með framlögum frá fyrirtækjum, sveitarfélögum og ríkisstofnunum sbr. ákvæði þar um í kjarasamningum. Það á þó ekki við um Fræðslusjóð Framsýnar sem hefur ekki fastan tekjustofn.