Rekstur Skrifstofu stéttarfélaganna gekk að venju vel á síðasta starfsári. Félagið er aðili að Skrifstofu stéttarfélaganna á Húsavík ásamt Starfsmannafélagi Húsavíkur og Þingiðn. Þar starfa í dag 6 starfsmenn í 4,8 stöðugildum. Að auki hafa 4 starfsmenn verið í hlutastörfum hjá Framsýn við að þjónusta orlofsíbúðir í Kópavogi, Akureyri og í Öxarfirði. Starfshlutfall þeirra er um 30% að meðaltali.
Skrifstofa stéttarfélaganna er opin átta tíma á dag. Starfsfólk skrifstofunnar er í góðu sambandi við félagsmenn og eru heimsóknir á skrifstofuna mjög tíðar. Auk þess er stórum hluta starfsins sinnt í gegnum síma, tölvur og með heimsóknum á vinnustaði og í skóla. Ekki eru fyrirsjáanlegar breytingar á rekstri skrifstofunnar. Þó er full ástæða til að fylgjast með framvindu mála og atvinnuástandinu þar sem búast má við lækkun á iðgjöldum til Framsýnar vegna samdráttar í atvinnulífinu nú þegar starfsemi PCC á Bakka liggur niðri. Lokun PCC hefur einnig áhrif á starfsemi annarra fyrirtækja s.s. undirverktaka sem hafa verið í viðskiptum við fyrirtækið. Góð nýting er á félagsaðstöðunni enda mikil starfsemi í gangi á vegum stéttarfélaganna. Ráðist var í breytingar á húsnæði stéttarfélaganna. Húsnæðið var málað að utanverðu auk þess sem skipt var um glugga á efri hæðinni, það er á norðurhliðinni þar gluggarnir voru orðnir ónýtir. Fulltrúaráð stéttarfélaganna gekk frá fjárhagsáætlun og rekstraráætlun fyrir skrifstofuna vegna ársins 2026. Reiknað er með sambærilegum rekstri milli ára. Áhugi er fyrir því að ráðast í breytingar á gluggum í fundarsalnum. Það er að stækka þá svo bjartara verði í fundarsalnum. Samþykkt liggur fyrir að ráðast í framkvæmdina um leið og færi gefst til þess.