Tæpar 135 milljónir í styrki til félagsmanna úr sjúkrasjóði

Á árinu 2025 voru 1.414 styrkir greiddir úr sjúkrasjóði Framsýnar til félagsmanna.  Samtals námu greiðslur vegna sjúkradagpeninga, annarra bóta og styrkja kr. 134.265.030,-. Sama upphæð fyrir árið á undan var kr. 133.651.922,-. Samkvæmt þessari niðurstöðu eru útgreiðslurnar svipaðar milli ára en þær hafa hækkað verulega á síðustu árum sem er ákveðið áhyggjuefni enda endurspeglast greiðslan af heilsufari félagsmanna.

Deila á