Tryggvi nýr formaður Einingar- Iðju

Tryggvi Jóhannsson er tekinn við sem formaður Einingar-Iðju. Hann er fullur tilhlökkunar að taka við félaginu eins og getið er um á heimasíðu félagsins. „Ég hlakka til samstarfsins við félagsmenn við að gera okkar góða félag enn betra.“

Síðasti starfsdagur fráfarandi formanns Önnu Júlíusdóttur var síðasti föstudagur en dagana á undan sat hún formannafund Starfsgreinasambands Íslands sem haldinn var við Höfn í Hornafirði, nánar tiltekið við Jökulsárlón. Anna tilkynnti á aðalfundi félagsins í apríl að hún hefði tekið þá ákvörðun að láta af störfum hjá félaginu frá og með 1. júní, bæði sem starfsmaður sem og formaður.

Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar sem fram fór nýlega var samþykkt samhljóða að Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir myndi taka að sér hlutverk varaformanns og hefur hún þegar hafið störf hjá félaginu.

Tryggvi var kjörinn varaformaður félagsins 2024 en hafði setið sem starfandi varaformaður frá árinu 2023. Hann hefur setið í stjórn félagsins frá 2017, en þá kom hann inn í hana sem nýr formaður Matvæla- og þjónustudeildar. Áður en hann tók við sem formaður deildarinnar hafði hann setið sem varaformaður hennar frá árinu 2014, ritari frá árinu 2012 og meðstjórnandi frá árinu 2008.

Um leið og Framsýn stéttarfélag þakkar Önnu Júl fyrir ánægjulegt samstarf í gegnum tíðina óskar félagið eftir góðu samstarfi við nýkjörinn formann Einingar- Iðju, Tryggva Jóhannsson um leið og honum er óskað til hamingju með formennskuna í öflugu stéttarfélagi við Eyjafjörð.

Fráfarandi formaður Einingar- Iðju, Anna Júlíusdóttir og formaður Framsýnar, Aðalsteinn Árni Baldursson, hafa lengi unnið saman að verkalýðsmálum en áður störfuðu þau í fiskvinnslu. Anna kom nýlega í heimsókn til Framsýnar með starfsmönnum og stjórn Einingar- Iðju. Þannig vildu forsvarsmenn félaganna efla tengsl félaganna inn í framtíðina. Við þökkum Önnu fyrir framlag hennar til réttindabaráttu verkafólks.
Deila á