Á næstu dögum munum við fjalla um aðalfund Framsýnar sem fram fór 20. maí í máli og myndum. Að venju fór fundurinn vel fram og miklar og góðar umræður urðu um starfsemi félagsins. Fram kom mikil ánægja með starfsemina og stöðu félagsins. Fundarmenn sáu ástæðu til að klappa fyrir starfinu. Alls greiddu 3.034 félagsmenn til Framsýnar stéttarfélags á árinu 2025 en greiðandi félagar voru 3.043 árið 2024. Af þeim sem greiddu félagsgjald til Framsýnar á síðasta ári voru 1.881 karlar og 1.153 konur, sem skiptist þannig að konur eru 38% og karlar 62% félagsmanna. Á undanförnum árum hefur karlmönnum heldur fjölgað umfram konur í félaginu ekki síst vegna tilkomu PCC. Um síðustu áramót voru gjaldfrjálsir félagsmenn samtals 303, það eru aldraðir og öryrkjar sem ekki eru á vinnumarkaði. Á hverjum tíma falla um 10% félagsmanna undir þessa skilgreiningu. Fjölmennustu hóparnir innan Framsýnar starfa við matvælaframleiðslu, ferðaþjónustu, almenn verslunarstörf, iðnað og hjá ríki og sveitarfélögum. Félagsmenn Framsýnar stéttarfélags voru samtals 3.337 þann 31. desember 2025, það er greiðandi og gjaldfrjálsir félagsmenn. Stærstu greiðendur iðgjalda samkvæmt ákvæðum kjarasamninga til Framsýnar 2025 eru eftir röð:
Sveitarfélagið Norðurþing
PCC BakkiSilicon hf.
Ríkissjóður Íslands
GPG. Seafood ehf.
Kjarnafæði-Norðlenska hf.
Þingeyjarsveit
Íslandshótel hf.
Jarðboranir hf.
Kaldvík hf.
Húsheild ehf.
Samherji fiskeldi ehf.
