Vilja skoða sameiningu við Þingiðn og Framsýn

Á aðalfundi Starfsmannafélags Húsavíkur kom fram sterkur vilji til að sameinast Þingiðn og Framsýn enda félögin átt mjög gott samstarf um verkalýðsmál til margra ára. Aðalfundurinn fór fram í gær. Eftirfarandi yfirlýsing var samþykkt samhljóða:

Yfirlýsing
-Sameining stéttarfélaga í Þingeyjarsýslum-

„Fulltrúaráð stéttarfélaganna, Framsýnar, Þingiðnar og Starfsmannafélags Húsavíkur, skorar á aðalfundi félaganna 2026 að samþykkja að stéttarfélögin hefji viðræður um sameiningu félaganna. Viðræðum verði lokið fyrir 31. desember 2026.

Reynist vilji til þess að sameina félögin og sé það framkvæmanlegt, verði stjórnum þeirra falið að  meta niðurstöðuna og bera hana undir félagsfundi í hverju félagi fyrir sig. Markmiðið verði að endanleg niðurstaða, hvað sameininguna varðar, liggi fyrir á aðalfundum félaganna vorið 2027.

Þannig samþykkt á fundi í Fulltrúaráði stéttarfélaganna 18. maí 2026.“

Þess má geta að bæði Framsýn og Þingiðn hafa samþykkt að hefja viðræður um sameiningu félaganna, helst með Starfsmannafélagi Húsavíkur.

Deila á