Á aðalfundi Starfsmannafélags Húsavíkur í gær var ákveðið að færa skólastofnunum í sveitarfélaginu Norðurþingi gjafir til að efla nemendur í leik og starfi. Það á bæði við um grunn- og leikskóladeildir. Starfsmennasjóður STH mun bera kostnað að verkefinu en sjóðurinn er í eigu Norðurþings og Starfsmannafélags Húsavíkur sem jafnframt tilnefna fólk í stjórn sjóðsins. Norðurþing hefur í gegnum tíðina greitt ákveðið gjald í sjóðinn af starfsmönnum sveitarfélagsins. Formanni STH var falið að fylgja málinu eftir með samtölum við skólastjórnendur í Norðurþingi en sveitarfélagið hafði áður samþykkt beiðni félagsins um að heimila því að færa stofnunum gjafir til að efla skólastarfið en sjóðnum er almennt ætlað að styðja við bakið á félagsmönnum sem fara í nám eða sækja námskeið sem gerir þá hæfari í starfi.