Hugtakið „hlaðinn starfsreynslu“ lýsir einstaklingi sem býr yfir mikilli, víðtækri og dýrmætri reynslu af vinnumarkaðinum. Það á svo sannarlega við um Kristbjörn Óskarsson sem hóf störf hjá Húsavíkurbæ fyrir 45 árum, sem sendill á bæjarskrifstofunni. Kiddi eins og hann er ávallt kallaður hóf störf hjá sveitarfélaginu þann 1. júní 1981. Frá árinu 2006 hefur Kiddi svo starfað fyrir Norðurþing eftir sameiningu sveitarfélaganna hér á svæðinu.
Í samtali við husavik.com kemur fram að hann hafi starfað með 7 sveitarstjórum, sá fyrsti var Bjarni Aðalgeirsson, þá Bjarni Þór Einarsson, næst Einar Njálsson, svo Reinhard Reynisson. Hjá Norðurþingi kom svo fyrstur Bergur Elías Ágústsson, svo Kristján Þór Magnússon og svo núna Katrín Sigurjónsdóttir. Þetta er allt hið vænsta fólk og hefur reynst mér vel segir Kiddi.
Þá segist hann í sama viðtali að hann ætli sér að ná 50 ára starfsafmælinu eftir 5 ár og jafnvel fjórum árum betur, því þá verði hann búinn að ná Ásu Gísla í starfsaldri, en hún var í 53 ár hjá bænum og hætti í febrúar á þessu ári.
Þrátt fyrir áfangann í gær var Kristbjörn mætur á aðalfund Starfsmannafélags Húsavíkur sem fram fór í gær. Hann hefur í gegnum tíðina ekki látið sig vanta á fundi í félaginu sem er honum afar kært enda lengi verið félagsmaður.