Fréttamolar frá aðalfundi Þingiðnar

Aðalfundur Þingiðnar var haldinn í fundarsal stéttarfélaganna þann 19. maí 2026. Hér má lesa umfjöllun um fundinn:

Félagsmenn í Þingiðn voru samtals 95 þann 31. desember 2025, það er greiðandi félagar, öryrkjar og aldraðir sem áður greiddu til félagsins.  Greiðandi fullgildir félagsmenn eru samtals 86.

Félagsgjöld og iðgjöld ársins 2025 námu kr. 16.699.439 en námu kr. 18.311.634 árið á undan, sem er lækkun um 8,8%. Heildartekjur námu kr. 22.430.244 en námu kr. 22.545.500 árið á undan. Rekstrargjöld voru kr. 27.169.992 árið 2025 en voru kr. 33.857.501 árið á undan og lækkuðu því um 19,8% á milli ára. Tap  var af rekstri fyrir fjármagnsliði. Stærsti einstaki útgjaldaliður félagsins er sem fyrr bætur og styrkir úr sjúkrasjóði. Árið 2025 voru alls greiddir úr sjúkrasjóði styrkir eða sjúkradagpeningar til félagsmanna kr. 8.382.098, en voru árið á undan kr. 15.308.038. Fjármagnstekjur lækkuðu úr kr. 12.131.127 árið 2024 í kr. 7.728.317 árið 2025 sem gerir um 36,29% lækkun milli ára. Tekjuafgangur félagsins nam kr. 2.988.569 en hann var kr. 819.126 árið áður. 

Útistandandi iðgjöld standa í kr. 6.344.697 um áramót og hækkuðu um rúma milljón milli ára. 

Heildareignir í árslok voru kr. 293.120.732 og eigið fé nam kr. 284.015.397, hefur það aukist um 1% frá fyrra ári. Rekstur Skrifstofu stéttarfélaganna gekk vel á síðasta ári. Þátttaka Þingiðnar í rekstrarkostnaði nam kr. 4.018.396.

Aðildarfélög Skrifstofu stéttarfélaganna ásamt Verkalýðsfélagi Þórshafnar hafa í gegnum tíðina átt mjög gott samstarf um orlofsmál. Stéttarfélögin eru með sameiginlega orlofsnefnd sem vinnur að því að bjóða félagsmönnum upp á marga góða kosti varðandi orlofsdvöl og sífellt er unnið að því að auka framboðið. Í því sambandi má nefna að framboð félagsmanna í gegnum orlofsvef stéttarfélaganna hefur verið stóraukið á liðnum árum með samningum við ferðaþjónustuaðila víða um land og Icelandair um afsláttarkjör fyrir félagsmenn milli landa. Þannig vilja félögin stuðla að því að félagsmenn geti notið þess að fara í frí innanlands. Þingiðn á eina íbúð í Þorrasölum 1-3 og aðra í Hraunholtinu á Húsavík. Þá eiga Þingiðn og Framsýn saman íbúð í gegnum Hrunabúð sf. að Garðarsbraut 26, efri hæð sem hefur verið í fastri útleigu. Á síðasta ári dvaldi fjöldi félagsmanna ásamt fjölskyldum sínum í orlofshúsum, orlofsíbúðum, á tjaldsvæðum og hótelum á vegum félagsins. Veruleg ásókn er í orlofshúsin en félagið niðurgreiðir orlofsdvöl félagsmanna í orlofsíbúðum/húsum  sem auðveldar fólki að njóta orlofsdvalar með fjölskyldum sínum á Íslandi. Ekki er óalgengt að niðurgreiðslurnar séu um kr. 50.000,- fyrir viku dvöl í þeim húsum sem félagið er með á leigu hjá öðrum aðilum. Þá fengu 11 félagsmenn endurgreiðslur á árinu 2025 vegna dvalar á tjaldsvæðum eða alls kr. 284.230,-. Árið á undan fengu 12 félagsmenn endurgreiðslur vegna dvalar á tjaldsvæðum eða alls kr. 269.365,-. Boðið var upp á sumarferð á vegum stéttarfélaganna 2025. Farið var í Flateyjardal og tókst ferðin í alla staði mjög vel. Ósk Helgadóttir varaformaður skipulagði ferðina með starfsmönnum  félaganna.

Á síðasta ári fengu 4 félagsmenn styrki úr fræðslusjóði félagsins til náms/námskeiða samtals kr. 544.303,-.

Tillaga stjórnar um að félagsgjaldið verði óbreytt milli ára, það er 0,7% af launum var samþykkt samhljóða. Tillaga stjórnar um að lágmarksfélagsgjaldið verði 0,3% af mánaðarlaunum iðnaðarmanna samkvæmt kjarasamningi Samiðnar og Samtaka atvinnulífsins var samþykkt samhljóða.  Tillaga stjórnar um að fræðslusjóðsgjaldið verði óbreytt milli ára, það er 0,3% af launum var samþykkt samhljóða.

Eins og fram kemur í ársreikningum félagins voru greiðslur til félagsmanna úr sjúkrasjóði félagsins samtals kr. 8.382.098,- á árinu 2025. Árið 2024 voru greiddar kr. 15.308.038,- í styrki til félagsmanna. Greiðslur til félagsmanna lækkuðu því verulega milli ára eða um 45%. Samkomulag er um það innan stjórnar félagsins að starfsmenn Skrifstofu stéttarfélaganna sjái um úthlutanir úr sjúkrasjóði í umboði stjórnar Þingiðnar. Almennt eru umsóknir úr sjóðnum teknar fyrir einu sinni í mánuði.

Atvinnuástandið hjá iðnaðarmönnum er almennt mjög gott um þessar mundir og mikið að gera hjá flestum ef ekki öllum iðnaðarmönnum enda hafa töluverðar framkvæmdir verið  í gangi á svæðinu.

Stéttarfélögin, Þingiðn og Framsýn, hafa frá árinu 2016 rekið öflugt vinnustaðaeftirlit á félagssvæðinu. Fullur vilji er til þess að halda áfram úti öflugu vinnustaðaeftirliti í fullu samráði við Alþýðusamband Íslands og helstu eftirlitsaðila í Þingeyjarsýslum. Heilt yfir er ástand vinnumarkaðarins á starfssvæðinu gott varðandi réttindi og kjör félagsmanna. Vitaskuld hafa annað slagið komið upp mál sem krefjast viðbragða, hjá því verður ekki komist.

Stéttarfélögin stóðu fyrir hátíðarhöldum 1. maí á Fosshótel Húsavík sem tókust afar vel en um 300 manns tóku þátt í hátíðarhöldunum.

Þingiðn hefur komið að mörgum málum frá síðasta aðalfundi. Ástæða er til að gera aðeins grein fyrir nokkrum þeirra: Félagið hefur komið upp samstarfi við Íslandsbanka þar sem aðilar frá stéttarfélögunum og útibúi bankans á Húsavík hittast reglulega og fara yfir þróun vaxtamála á reikningum stéttarfélaganna á hverjum tíma. Afar mikilvægt er að fylgst sé reglulega með þróun vaxtamála enda hefur ávöxtun félaganna á bankainnistæðum bein áhrif á starfsemi þeirra og getu til að gera vel við félagsmenn. Formaður félagsins sat fund með starfshóp forsætisráðherra um málefni PCC það sem skýrsla um viðbrögð hins opinbera voru kynnt. Það helsta í viðbrögðunum er að ráðinn verði verkefnastjóri til þess að hjálpa til við að koma fleiri fyrirtækjum á Bakka og nágrenni sem þegar hefur tekið til starfa. Um er að ræða tveggja ára verkefni sem er kostað af ríkinu 80% og sveitarfélaginu Norðurþingi 20%. Félagið hefur komið að kynningum á starfsemi stéttarfélaga í grunnskólum á félagssvæðinu með Framsýn stéttarfélagi. Félagið kom að því að halda tveggja daga trúnaðarmannanámskeið í mars 2026, það er með öðrum aðildarfélögum Skrifstofu stéttarfélaganna. Námskeiðið var vel sótt. Þriðjudaginn 30. september stóð Framsýn fyrir félagsfundi um atvinnu- og lífeyrismál. Gestir fundarins voru Kári Marís Guðmundsson framkvæmdastjóri PCC og Jóhann Steinar Jóhannsson framkvæmdastjóri Lsj. Stapa. Um 30 fundarmenn sóttu fundinn sem var bæði upplýsandi og góður. Fundurinn ályktaði um atvinnu- og lífeyrismál. Fundurinn var opinn félagsmönnum Þingiðnar.  Þann 21. janúar sl. stóð Framsýn fyrir opnum fundi um lífeyrismál og töku lífeyris fyrir félagsmenn í samráði við starfsmenn Lsj. Stapa. Gestir fundarins voru, Jóna Finndís Jónsdóttir, forstöðumaður réttindasviðs sjóðsins og Kristín Hilmarsdóttir sem sér um kynningar og vefmál sjóðsins. Félagsmönnum Þingiðnar var boðið að sitja fundinn sem var mjög fróðlegur. Samþykkt var að styrkja Mærudagshátíðina á Húsavík sumarið 2025 um kr. 100.000,-. Félagið kom að því að niðurgreiða leikhúsferðir félagsmanna á leikrit á vegum Leikdeildar Eflingar sem var til sýnis eftir áramótin 2026. Ráðist var í framkvæmdir við húsnæði stéttarfélaganna að Garðarsbraut 26 á Húsavík. Skipt var um alla glugga á norðurhlið hússins haustið 2025, efri hæð. Þá var húsið málað að utan sumarið 2025. Ástandið er því gott á húsnæðinu.

Rekstur Hrunabúðar sf. sem er í eigu Framsýnar og Þingiðnar hefur almennt gengið vel. Eignarhluturinn á efri hæðinni að Garðarsbraut 26 skiptist þannig: Framsýn á 84% og Þingiðn 16%. Félagið var stofnað á árinu 2017 utan um sameiginlegt eignarhald og sameiginlegan rekstur á efri hæð Garðarsbrautar 26. Heildarvelta félagsins árið 2025 var kr. 12,96 milljónir samanborið við kr. 12,88 milljóna veltu árið 2024. Tekjuafgangur ársins nam kr. 2,8 milljónum samanborið við kr. 3,5 milljón árið 2024. Einn starfsmaður starfaði hjá félaginu á árinu í hlutastarfi við ræstingar. Þess utan eru reiknuð stjórnunarlaun á rekstur Hrunabúðar og fram koma í ársreikningi félagsins.

Deila á