Rúnar frambjóðandi á ferðinni

Rúnar Traustason sem  leiðir M-lista Samfélagsins í Norðurþingi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar gaf sér tíma í dag til að heimsækja formann Framsýnar. Tilgangur heimsóknarinnar var að fara yfir málefni Norðurþings og áherslur Framsýnar sem varðar það sem betur má fara í okkar ágæta samfélagi. Frambjóðendur M-listans hafa verið á ferðinni um sveitarfélagið undanfarna daga og vikur enda tilgangurinn að hitta kjósendur og kynna fyrir þeim áherslur listans sem ætlar sér stóra hluti í komandi kosningum til sveitarstjórnar Norðurþings. Fram kom hjá Rúnari að framboðið leggur mikið upp úr góðu samstarfi við stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum varðandi málefni sveitarfélagsins og það sem betur má fara.

Deila á