Virkilega góður fundur

Formaður Framsóknarflokksins, Lilja Alfreðsdóttir og Þórarinn Ingi Pétursson alþingismaður ásamt frambjóðendum flokksins til sveitarstjórnar Norðurþings óskuðu eftir fundi með formanni Framsýnar í gær til að ræða stöðuna í atvinnumálum, velferðarmál og frekari uppbyggingu á svæðinu. Þá var nýleg könnun sem Framsýn lét gera um stöðu félagsmanna til umræðu og haustið 2026 en allt stefnir í að kjarasamningum verði sagt upp í haust enda verðbólgan töluvert fyrir ofan þau viðmið sem kjarasamningarnir byggja á. Þá er mikil reiði innan verkalýðshreyfingarinnar varðandi framgöngu ríkistjórnarinnar sem er með til skoðunar að veikja verulega réttindi launþega á vinnumarkaði með framkomnum frumvörpum sem eru til umræðu á þingi. Gestirnir gáfu sér góðan tíma og urðu miklar og góðar umræður um viðfangsefni fundarins. Stéttarfélögin hafa í gegnum tíðina lagt mikið upp úr góðu samstarfi við stjórnmálamenn, hvort heldur ráðherra, þingmenn eða sveitarstjórnarmenn.

Formaður Framsýnar óskaði eftir góðu samsstarfi við Framsókn er varðar atvinnu- og byggðamál í Þingeyjarsýslum. Hér er hann ásamt formanni Framsóknaflokksins sem tók undir mikilvægi þess að stjórnmálamenn á hverjum tíma vinni náið með heimamönnum hvað þessa málaflokka varðar sem og mennta- og velferðarmál.
Deila á