Aðalfundur Sparisjóðs Þingeyinga fór fram í gær en hann var haldinn á Breiðumýri. Eins og hefð er fyrir var farið yfir starfsemina milli aðalfunda, ársreikninga og kosið í stjórn sjóðsins. Almennt er staða sjóðsins góð, þá var gengið frá kjöri á stjórn. Nokkrar breytingar urðu á stjórninni en 7 gáfu kost á sér en 5 sitja í stjórn sjóðsins samkvæmt samþykktum hans. Á fundinum færði Sparisjóðurinn nokkrum félagasamtökum á svæðinu veglegar gjafir sem er virkilega vel gert. Fulltrúar frá Þingiðn og Framsýn tóku þátt í fundinum enda félögin stofnfjáreigendur í þessari mikilvægu fjármálastofnun í Þingeyjarsýslum.