Aðalfundur Framsýnar stéttarfélags verður haldinn miðvikudaginn 20. maí kl. 20:00 í fundarsal stéttarfélaganna.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
a) Félagaskrá
b) Skýrsla stjórnar
c) Ársreikningar
d) Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikninga
e) Kjör í stjórnir, nefndir og ráð
f) Kosning löggilts endurskoðanda/endurskoðunarskrifstofu
g) Lagabreytingar
h) Ákvörðun árgjalda
i) Laun aðalstjórnar, trúnaðarráðs, nefnda og stjórna innan félagsins
2. Önnur mál
a) Ályktun um kjaramál
Athygli er vakin á 32. grein laga félagsins – Ráðstöfun úr sjóðum félagsins:
Tillögur stjórnar, trúnaðarráðs og félagsmanna um meiriháttar ráðstöfun úr sjóðum félagsins sem bornar eru upp á aðal- eða félagsfundi til samþykktar, skal lýst í fundarboði. Berist slík tillaga eftir fundarboð, er hún tæk fyrir fundinn hafi hún borist stjórn félagsins með skriflegum hætti eigi síðar en 10 dögum fyrir boðaðan fund. Skal þá stjórn félagsins fjalla um tillöguna og láta hana liggja frammi á skrifstofu félagsins til kynningar fyrir félagsmenn í a.m.k. 5 virka daga.
Tillögur stjórnar og trúnaðarráðs sem liggja fyrir aðalfundinum eru aðgengilegar félagsmönnum á Skrifstofu stéttarfélaganna.
Að venju er skorað á félagsmenn að fjölmenna á fundinn, enda þátttaka félagsmanna í starfinu forsendan fyrir öflugu starfi félagsins. Á fundinum verður boðið upp á hefðbundnar kaffiveitingar og þá fá allir fundargestir glaðning frá félaginu. Sjáum hress.
Framsýn stéttarfélag