Hvað er í gangi? – Loftbrú breytt peningana vegna

Núverandi ríkistjórn hefur gert í því að ráðast að réttindamálum verka- og láglaunafólks s.s. með því að boða verulegar skerðingar á atvinnuleysisbótum og á starfsöryggi starfsmanna ríkisstofnana með því að fella niður ámenningarskylduna. Verkalýðshreyfingin hefur mótmælt þessu harðlega en svo virðist sem stjórnvöld hafi takmarkaðan áhuga á því að hlusta á mótmæli hreyfingarinnar. Rifjum upp: Við undirritun kjarasamninga 2024 var stefnt að því að ná niður verðbólgu og vöxtum. Launafólk undirgekkst launahækkanir undir verðbólgu í trausti þess að fyrirtæki myndu halda aftur af sér í verðhækkunum og hið opinbera myndi standa við gefin fyrirheit. Þar á meðal voru loforð ríkis og sveitarfélaga um að gjaldskrárhækkunum yrði stillt í hóf, sérstaklega er varða barnafjölskyldur og fólk í viðkvæmri stöðu. Þessi loforð hafa verið þverbrotin. Þá hafa skattar og þjónustugjöld hækkað umfram það sem lofað var.

Nú stígur Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra fram og greinir frá því að ekki sé von á að loftbrú í innanlandsflugi verði af­numin með öllu en breytingar á henni séu til skoðunar. Loftbrú veitir einstaklingum á lands­byggðinni 40% afslátt af heildarfargjaldi innanlandsflugs til og frá höfuð­borgarsvæðinu vegna sex flugleggja á ári. Fólk á landsbyggðinni hefur kallað eftir því að þessum ferðum væri fjölgað, í stað þess stendur til að skerða þær.  Er von að spurt sé, á hvaða vegferð er þessi blessaða ríkistjórn?

Sjá frétt um málið inn á mbl.is Loftbrú breytt peninganna vegna

Deila á