Stjórnir Framsýnar og Einingar-Iðju ásamt starfsmönnum félaganna hittumst á Húsavík á föstudaginn. Þar kom fram fullur vilji til að auka samstarf stéttarfélaganna á ýmsum sviðum s.s. er tengist undirbúningi vegna komandi kjaraviðræðna við Samtök atvinnulífsins en kjarasamningar eru næst lausir 1. febrúar 2028. Þeir gætu þó losnað í haust þar sem forsendur þeirra eru brostnar. Kraftaverk þarf til svo ekki komi til þess að kjarasamningum verði sagt upp í haust.
Hvað undirbúning varðar fyrir komandi kjaraviðræður við SA vegna kjarasamningana sem losna 1. febrúar 2028 mun hann væntanlega hefjast í haust eða í byrjun næsta árs, áður en til þess kemur þurfa stéttarfélögin að setjast niður og móta kröfugerð. Vilji er til þess hjá félögunum að móta sameiginlega kröfugerð. Þá hefur AFL Starfsgreinafélag opnað á það að taka þátt í þessari vinnu en það mun skýrast betur síðar. Um er að ræða þrjú öflug stéttarfélög innan Starfsgreinasambands Íslands. Á fundi Einingar-Iðju og Framsýnar var einnig umræða um að félögin settust yfir reglugerðir sjúkrasjóða félaganna með það að markmiði að skýra þær betur og sníða af helstu vankanta sem er löngu tímabært.
Á meðfylgjandi mynd er Anna Júlíusdóttir formaður Einingar-Iðju og Tryggvi Jóhannsson varaformaður sem tekur væntanlega við sem formaður síðar á árinu. Fyrir hönd Einingar-Iðju færðu þau Framsýn fallegt málverk eftir norðlensku listakonuna Möggu Kristínu Björnsdóttir. Verkið er úr Lystigarðinum á Akureyri með Menntaskólann á Akureyri í bakgrunn.