Eins og fram hefur komið hefur Starfsgreinasamband Íslands gengið frá kjarasamningi við ríkið fyrir aðildarfélög sambandsins, þar á meðal Framsýn stéttarfélag. Atkvæðagreiðsla um samninginn verður rafræn og hefst kl. 12:00 mánudaginn 1. júlí – rétt áður en opnað verður fyrir kosningu mun kosningaslóðin birtast á heimasíðu Framsýnar. Slóðin verður einnig aðgengileg á upplýsingasíðu á sgs.is. Atkvæðagreiðslu lýkur kl. 09:00 mánudaginn 8. júlí. Niðurstaðan ætti að liggja fyrir í síðasta lagi um hádegi sama dag.
Kynningarefni:
- Búið er að opna upplýsingasíðu á sgs.is og þangað verður efni bætt inn jafnóðum og það verður til, sjá hér: https://www.sgs.is/kjaramal/kjarasamningar/kjarasamningur-sgs-og-rikisins-2024-2028/
- Fyrir helgi verður kominn þangað inn:
- Einblöðungur með helstu atriðum samnings (sem verður þýddur á ensku og pólsku)
Framsýn skorar á félagsmenn að taka þátt í atkvæðagreiðslu um samninginn en hún hefst kl. 12:00 mánudaginn 1. júlí