Nemendur Vinnuskólans á Húsavík litu við á Skrifstofu stéttarfélaganna í morgun ásamt flokkstjórum til að fræðast um starfsemi stéttarfélaga. Unglingarnir voru mjög áhugasamir og spurðu töluvert út í starfsemina. Von er á fleiri heimsóknum í sumar frá nemendum í Vinnuskólum á félagssvæðinu. Arnar Páll Matthíasson, Jakob Gunnar Sigurðsson og Guðrún Birna Örvarsdóttir fóru fyrir hópnum.
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2024/06/20240611_083611-1024x768.jpg)
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2024/06/20240611_083711-1024x768.jpg)
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2024/06/20240611_083619-1024x768.jpg)
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2024/06/20240611_083628-1024x768.jpg)