Samkvæmt frétt ruv.is verður Samherja gert að loka fiskþurrkun á Laugum eftir að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála afturkallaði starfsleyfi þeirra. Tuttugu starfsmenn fiskþurrkunarinnar voru upplýstir um þetta í morgun. Starfsmenn fyrirtækisins hafa þegar sett sig í samband við Framsýn stéttarfélag þar sem þeir hafa miklar áhyggjur af stöðunni enda afar mikilvægur vinnustaður í Þingeyjarsveit. Þeim tilmælum er beint til Framsýnar að félagið gæti hagsmuna starfsmanna í þessari óvissu.
Sjá frétt ruv um málið og yfirlýsingu Samherja: https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-09-17-loka-fiskthurrkun-samherja-a-laugum-eftir-afturkollun-starfsleyfis-487311
Meðfylgjandi mynd er úr myndasafni Framsýnar og tengist ekki fréttinni beint.