Sveitarfélagið Norðurþing greiddi mest allra atvinnurekenda í iðgjöld til Framsýnar árið 2023. Árið 2022 greiddi PCC BakkiSilicon hf. hins vegar mest allra fyrirtækja til Framsýnar. Innifalið í upphæðinni eru félagsgjöld starfsmanna og lögbundin iðgjöld atvinnurekenda í sjóði Framsýnar og í starfsmenntasjóði atvinnulífsins. Stærstu greiðendur iðgjalda til Framsýnar 2023 eftir röð:
Sveitarfélagið Norðurþing
PCC BakkiSilicon hf.
Þingeyjarsveit
GPG. Seafood ehf.
Ríkissjóður Íslands
Íslandshótel hf.
Norðlenska matarborðið ehf.
Samherji fiskeldi ehf.
Eimskip ehf.
Norðursigling hf.