Framsýn stóð fyrir kaffiboði síðasta laugardag, 1. júní, í Félagsheimilinu Hnitbjörgum á Raufarhöfn. Um er að ræða árvissan viðburð sem notið hefur töluveðra vinsælda meðal bæjarbúa. Um 130 manns komu og þáðu kaffi, konfekt og tertu sem Kvenfélagið á Raufarhöfn lagði til. Auk þess að snæða góða tertu gafst heimamönnum tækifæri á að ræða við formann og varaformann félagsins um allt milli himins og jarðar en þeir voru á staðnum. Sá mikli höfðingi Helgi Ólafsson varð 95 ára þann 31. maí. Í tilefni af því færði Aðalsteinn Árni honum blómvönd frá Framsýn. Með þeim á myndinni er eiginkona Helga, Stella Þorláksdóttir. Ástæða er til að þakka heimamönnum fyrir komuna og aðstoðina við kaffiboðið.
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2024/06/20240601_144010-1024x768.jpg)
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2024/06/20240601_154507-1024x768.jpg)
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2024/06/20240601_155734-1024x966.jpg)
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2024/06/20240601_145742-790x1024.jpg)
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2024/06/20240601_155650-1024x711.jpg)
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2024/06/20240601_155949-1024x881.jpg)
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2024/06/20240601_160023-1024x768.jpg)