Heimildin fjallar um misskiptinguna sem hefur verið að aukast í þjóðfélaginu með hverju árinu. Miðað við ofsagróða 0,1% þjóðarinnar ætti ekki að vera erfitt að gera góða kjarasamninga í yfirstandandi kjaraviðræðum SA og aðildarfélaga ASÍ sem standa yfir um þessar mundir. Heimildin skrifar:
„Þær 242 fjölskyldur landsins sem þénuðu mest í fyrra áttu samtals 353 milljarða króna um síðustu áramót og skulduðu lítið sem ekkert. Næstum þrjár af hverjum fjórum krónum sem hópurinn þénar eru fjármagnstekjur. Eignir hans eru vanmetnar þar sem verðbréf eru metin á nafnvirði, ekki á því virði sem hægt væri að selja þau á.
Ríkasta 0,1 prósent landsmanna – hópur sem telur alls 242 heimili – átti alls 353 milljarða króna í eigin fé í lok síðasta árs. Auður hópsins jókst um 28 milljarða króna á árinu 2022. Að meðaltali jókst eigið fé hvers og eins heimilis innan hópsins um tæplega 116 milljónir króna á einu ári.
Þessi hópur skuldar lítið sem ekkert. Eiginfjárhlutfall hans er 98,4 prósent. Hver fjölskylda innan hópsins átti að meðaltali 1,5 milljarð króna í eignum í lok síðasta árs en skuldaði að meðaltali 23 milljónir króna. Ljóst má vera að sumir innan hópsins eru miklu ríkari en aðrir og því lýsir meðaltalseignin einungis hluta af stöðunni eins og hún er.
Þetta kemur fram í svari Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn Loga Einarssonar, þingflokksformanns Samfylkingarinnar, sem birt var á vef Alþingis á síðasta degi fyrir þinglok. Þar var spurt hvernig eignir og skuldir heimila landsins skiptust …“