Hefð er fyrir því innan Framsýnar að halda jólafund félagsins á aðventu fyrir stjórn, trúnaðarráð, trúnaðarmenn, starfsmenn og stjórn Framsýnar-ung. Þannig vill Framsýn þakka þeim fjölmörgu, sem flestir starfa í sjálfboðavinnu, fyrir framlag þeirra í þágu félagsmanna. Auk venjulegra fundarstarfa var boðið upp á kvöldverð og skemmtiatriði sem fundarmenn sáu sjálfir um að tendra fram. Að venju stóð skemmtinefndin sig afar vel sem Ósk Helgadóttir fór fyrir. Þá má ekki gleyma því að starfsfólkið á Gamla bauk sá til þess að enginn færi svangur heim. Linda M. Baldursdóttir var kjörin jólasveinn ársins fyrir vel unnin störf í þágu félagsins og þá var Ósk varaformaður heiðruð með blómvendi frá samstarfsfólkinu innan Framsýnar en hún hefur verið mjög virk í starfi félagsins enda einstök kona í alla staði er viðkemur ekki síst verkalýðsmálum. Myndirnar frá fundinum tala sínu máli en það er bæði gefandi og skemmtilegt að starfa fyrir eitt öflugasta stéttarfélag landsins. Höfum í huga að það er alltaf pláss fyrir áhugasama félagsmenn sem vilja gefa kost á sér í gefandi og skemmtileg störf í þágu Framsýnar.
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2022/12/20221202_192113-1-1024x768.jpg)
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2022/12/20221202_192124-3-1024x768.jpg)
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2022/12/20221202_192207-1-1024x768.jpg)
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2022/12/20221202_192221-1-1024x768.jpg)
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2022/12/20221202_192304-1-1024x768.jpg)
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2022/12/20221202_192327-1-1024x768.jpg)
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2022/12/20221202_192344-1-1024x768.jpg)
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2022/12/20221202_193746-1-830x1024.jpg)
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2022/12/20221202_201704-1-1024x768.jpg)
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2022/12/20221202_224844-1-1024x768.jpg)
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2022/12/20221202_231001-1-1024x768.jpg)
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2022/12/20221202_192008-1024x768.jpg)
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2022/12/20221202_220920-2-1024x768.jpg)