Þessir miklu höfðingjar komu við á Skrifstofu stéttarfélaganna í dag til að taka stöðuna með formanni Framsýnar, Aðalsteini Árna. Þetta voru þingmennirnir Jens Garðar og Ingvar en þessa vikuna stendur yfir kjördæmavika. Þá gera þingmenn sitt besta til að heimsækja fyrirtæki, félagasamtök, sveitarstjórnir og íbúa í viðkomandi kjördæmum.