Stjórnir sjóðanna Landsmenntar, Sveitamenntar, Ríkismenntar og Sjómenntar hafa samþykkt að framlengja 90% endurgreiðslu vegna styrkveitinga til 30. september 2022 og gildir gagnvart námi/námskeiðum sem haldin eru/byrja innan þessa sama tímaramma.
Breytingar á úthlutunarreglum voru eftirfarandi:
Endurgreiðslur til fyrirtækja vegna kostnaðar við námskeiðahald, voru hækkaðar úr allt að 75% í allt að 90% af styrkhæfum heildarkostnaði. Sveitamennt og Ríkismennt veita 100% styrki til stofnana sveitarfélaga og ríkisstofnana.
Hámarksupphæð einstaklingsstyrkja verður áfram kr. 130.000 á ári miðað við núverandi reglur. Hlutfalli endurgreiðslu var hins vegar breytt og er 90% í stað 75% af kostnaði við námið.
Tómstundstyrkir sem voru 75% en að hámarki kr. 30.000 á ári eru í sama hámarki og hefðbundnir styrkir, það er kr. 130.000 á ári. Hlutfall endurgreiðslunnar verði sömuleiðis 90% af viðurkenndum kostnaði við námið.
Framsýn stéttarfélag er aðili að þessum sjóðum í gegnum kjarasamninga fyrir sína félagsmenn. Um er að ræða góða kjarabót fyrir félagsmenn að hafa aðgengi að öflugum fræðslusjóðum.