Um áramót taka gildi ýmsar skattabreytingar sem snerta bæði heimili og fyrirtæki í landinu. Fjármálaráðuneytið fjallar um helstu efnisatriði breytinganna en nánari upplýsingar um einstakar breytingar má finna í greinargerðum viðkomandi lagafrumvarpa á vef Alþingis.
Fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu, að um áramótin muni nýtt viðmið um þróun þrepa- og skattleysismarka tekjuskatts einstaklinga taka gildi. Breytingin sé síðasti áfangi skattkerfisbreytinga fyrir einstaklinga síðustu ár, þar sem tekjuskattur hafi lækkað talsvert – mest hjá tekjulægri hópum.
„Þrepa- og skattleysismörk munu þá þróast í takt við vísitölu neysluverðs að viðbættu mati á langtímaframleiðni. Miðað verður við 1% framleiðnivöxt á ári sem tekið verður til endurskoðunar á fimm ára fresti, næst vegna staðgreiðsluársins 2027. Skattleysismörk munu því hækka umfram það sem þau gerðu þegar einnig verður tekið mið af framleiðniaukningu. Sama viðmið verður hér eftir notað við uppfærslu skattleysis- og þrepamarka þannig að skattbyrði mismunandi tekjuhópa þróist ekki með ólíkum hætti til lengri tíma litið. Áður fylgdu þrepamörk efsta þrepsins launavísitölu en skattleysismörk fylgdu vísitölu neysluverðs. Mismikil hækkun skattleysis- og þrepamarka hefur leitt til þess að hlutfallsleg skattbyrði einstaklinga í neðri hluta tekjudreifingarinnar hefur hækkað meira en hjá einstaklingum í efri hluta tekjudreifingarinnar án þess að sérstök ákvörðun liggi fyrir þar um. Samtals hækka viðmiðunarfjárhæðir tekjuskatts um 6,1%. Skatthlutföll tekjuskatts til ríkisins verður óbreytt ásamt meðalútsvari,“ segir í tilkynningu fjármálaráðuneytisins.
Barnabætur
Þríþættar breytingar á barnabótum eru boðaðar um áramótin. Fjárhæðir barnabóta munu hækka á bilinu 5,5% til 5,8%. Þá munu neðri skerðingarmörk tekjustofns barnabóta hækka um 8,0% og efri skerðingarmörk um 12%.
Tryggingagjald
Í ársbyrjun 2022 mun tímabundin lækkun á almenna tryggingagjaldinu, sem var hluti af aðgerðapakka stjórnvalda vegna efnahagsáhrifa kórónuveirunnar, renna sitt skeið á enda. Skatthlutfall almenns tryggingagjalds mun því fara úr 4,65% í 4,9%. Tryggingagjald í heild breytist þannig úr 6,1% í 6,35%.
Erfðafjárskattur
Skattfrelsismark erfðafjárskatts tekur árlegri breytingu miðað við þróun vísitölu neysluverðs og hækkar úr 5.000.000 kr. í 5.255.000 ársbyrjun 2022. Er það í samræmi við samþykktar breytingar við afgreiðslu fjárlaga 2021 þar sem skattfrelsismarkið var hækkað úr 1,5 m.kr. í 5 m.kr. og skyldi framvegis taka árlega breytingu miðað við þróun vísitölu neysluverðs. Skatthlutfallið helst óbreytt.
(Þessi frétt er tekin af mbl.is)