Pósturinn ohf. sendi nýlega frá sér tilkynningu um gríðarlegar hækkanir á mörgum liðum verðskrár sinnar frá og með 1. nóvember 2021. Fram til þessa dags hefur verðskrá hins opinbera fyrirtækis miðast við að sama verð gildi um allt land, líkt og krafa löggjafans hefur verið, og hefur það jafnt átt við um pakkasendingar sem skilað er í póstbox og pakkaport eða heimsendingar og sendingar sem skilað er á pósthús. Ljóst er að þessar verðbreytingar koma sér afar illa fyrir landsbyggðina. Hækkanirnar voru til umræðu á stjórnar og trúnaðarráðsfundi Framsýnar í vikunni. Reiði var meðal fundarmanna með þessar miklu hækkanir. Samþykkt var að álykta um málið.
Ályktun
-Um verðskrárhækkanir hjá Póstinum-
„Framsýn stéttarfélag gagnrýnir harðlega ákvarðanir Póstsins um að hækka verðskrár fyrirtækisins sem beinast eingöngu að landsbyggðinni. Pósturinn ohf. hefur boðað verulegar hækkanir á flestum liðum verðskrár sinnar frá og með 1. nóvember 2021 sem koma sér afar illa við íbúa og atvinnulífið á landsbyggðinni.
Fram til þessa dags hefur verðskrá hins opinbera fyrirtækis miðast við að sama verð gildi um allt land, líkt og krafa löggjafans hefur verið. Samkvæmt boðuðum verðskrárbreytingum nemur hækkunin í mörgum tilvikum tugum prósenta og jafnvel yfir 100%.
Með þessum glórulausu hækkunum er Pósturinn að senda íbúum í hinum dreifðu byggðum fingurinn. Um er að ræða mikilvægt byggðamál sem hefur áhrif á útgjaldaliði heimilanna, ekki síst fjarri höfuðborgarsvæðinu. Stjórnvöld geta ekki setið hjá og látið þetta óréttlæti viðgangast. Fyrir liggur að það er vitlaust gefið sem er ólíðandi með öllu.
Framsýn stéttarfélag auglýsir eftir byggðastefnu stjórnvalda sem hafi það að leiðarljósi að koma í veg fyrir mismunun sem þessa.“