NTV skólinn, í samstarfi við starfsmenntasjóði, býður félagsmönnum Framsýnar Skrifstofuskóla NTV í fjarnámi á ensku, pólsku og íslensku.
Námskeiðin verða niðurgreidd um 90% með einstaklingsstyrkjum, sem eru að hámarki 130.000,- kr., af starfsmenntasjóðunum Landsmennt, Sjómennt, Sveitamennt og Ríkismennt sem Framsýn stéttarfélag á aðild að. Framsýn er svo tilbúið að koma með aukastyrk til félagsmanna fari þeir á þessi námskeið.
Einnig verður námskeiðið „Grunnnám í bókhaldi boðið samhliða.
Námskeiðunum verður skipt í tvo hluta, „Skrifstofuskóli NTV – Grunnur“, 9 vikna námskeið sem verður í boði á haustönn og „Skrifstofuskóli NTV – Framhald“, 6 vikna námskeið sem haldið verður í byrjun næsta árs. Aðilar sem taka grunnnámskeiðið, sem er með áherslu á tölvufærni og almenna skrifstofufærni, hafa val um að skrá sig á framhaldsnámskeið eftir áramótin, sem verður með áherslu á bókfærslu og reikningshald.
NTV býður námskeiðin á sérstöku tilboðsverði og stefnt er að því að þau hefjist 18. október nk.
Námskeið | Tungumál | Vikur | Tilboðsverð | Byrjar | Lýkur | |
Skrifstofuskóli NTV – Grunnur | Íslenska | 9 | 149.000 | 18.10.21 | 17.12.21 | |
Skrifstofuskóli NTV – Grunnur | Enska | 9 | 149.000 | 18.10.21 | 17.12.21 | |
Skrifstofuskóli NTV – Grunnur | Pólska | 9 | 149.000 | 18.10.21 | 17.12.21 | |
Bókhald grunnur | Íslenska | 7 | 149.000 | 18.10.21 | 03.12.21 |
Nánari lýsingu á námskeiðunum má finna með því að smella á myndirnar hér fyrir neðan.
Skráningar:
Enska: Office and Computer skills – Online course | NTV – Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn
Pólska: Szkoła biurowa NTV – Kurs Online | NTV – Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn
Íslenska: Skrifstofuskóli Grunnur – Fjarnám | NTV – Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn
Grunnám í bókhaldi: Grunnnám í bókhaldi og Excel | NTV – Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn