Aðalfundur Starfsmannafélags Húsvíkur verður haldinn fimmtudaginn 27. ágúst kl. 20:00 í fundarsal stéttarfélaganna. Skorað er á félagsmenn að fjölmenna á fundinn.
Samkvæmt 13. gr. félagslaga er aðalfundur æðsta vald félagsins og skal hann haldinn ár hvert. Sérstök verkefni aðalfundar eru þessi:
Dagskrá:
1 ) Stjórn félagsins gefur skýrslu um starfsemi félagsins síðastliðið ár.
2 ) Lagðir fram til úrskurðar endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir síðastliðið ár.
3 ) Tekin ákvörðun um árgjöld félagsmanna.
4 ) Lagabreytingar, enda hafi tillögur til breytinga borist stjórn félagsins tveimur vikum fyrir aðalfund.
5 ) Kosning stjórnar samkvæmt 6. grein.
6 ) Kosning endurskoðenda samkvæmt 6. grein.
7 ) Kosning fulltrúa í stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Húsavíkurkaupstaðar.
8 ) Kosning fulltrúa á þing B.S.R.B.
9 ) Kosning fulltrúa í orlofs-, ferðamála- og starfskjaranefnd.
10 ) Önnur mál, sem fram koma á fundinum.
Stjórn STH