Stéttarfélögin standa fyrir trúnaðarmannanámskeiði dagana 16 – 17 apríl nk. Námskeiðið verður haldið á Húsavík. Skráning fer fram hjá Félagmálaskóla alþýðu og þar er hægt að skrá sig inn á Mínar síður eða með rafrænum skilríkjum https://www.felagsmalaskoli.is/ Missið ekki af þessu – svona námskeið eru nefnilega bæði fræðandi og skemmtileg. Námskeiðin eru trúnaðarmönnum að kostnaðarlausu. Samkvæmt ákvæðum kjarasamninga eiga trúnaðarmenn rétt á að sækja slík námskeið á vinnutíma án skerðingar launa.
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2020/02/20200129_144107-e1581410143215.jpg)