Starfsgreinasamband Íslands óskar eftir að ráða öflugan einstakling í starf framkvæmdastjóra. Um er að ræða afar fjölbreytt og krefjandi starf.
Starfssvið:
- Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri
- Stefnumótun og framkvæmd ákvarðana
- Umsjón með gerð og túlkun kjarasamninga
- Umsjón með kynningarstarfi, útgáfu og samskiptum við fjölmiðla
- Skipulagning samráðs og samstarfs aðildarfélaga
- Samskipti við innlend og erlend aðildarfélög
- Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun og reynsla sem nýtist í starfi
- Reynsla af stjórnun og rekstri
- Reynsla og þekking á málefnum stéttarfélaga og kjarasamningum
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum og leiðtogahæfileikar
- Hæfni til að miðla upplýsingum í ræðu og riti
- Góð kunnátta í íslensku, ensku og einu norðurlandamáliUmsóknarfrestur er til og með 15. november n.k.
- Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is.
- Starfsgreinasamband Íslands er stærsta landssamband innan ASÍ og samanstendur af 19 stéttarfélögum verkafólks með um 57 þúsund félagsmenn. Hlutverk sambandsins er að styðja og styrkja aðildarfélögin í þeirra starfi og hagsmunabaráttu félagsmanna þeirra. Skrifstofa sambandsins er í Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík.