Gengið frá kjöri á trúnaðarmönnum á fundi með starfsmönnum PCC

Framsýn stóð fyrir fundi með starfsmönnum PCC á þriðjudaginn í fundarsal stéttarfélaganna. Á fundinum var farið yfir starfsemi Framsýnar, viðræður félagsins við Samtök atvinnulífsins vegna samkomulags sem unnið er að um kjör og aðbúnað starfsmanna PCC sem koma frá nokkrum þjóðlöndum. Að lokum var gengið frá kjöri á tveimur trúnaðarmönnum starfsmanna. Starfsmennirnir, Sigrún Hildur Tryggvadóttir og Henrik Cater fengu góða kosningu og gildir kjör þeirra til tveggja ára. Þau verða trúnaðarmenn fyrir almenna framleiðslustarfsmenn og starfsfólk á skrifstofu PCC sem eru félagsmenn í Framsýn. Næsta föstudag hafa síðan Þingiðn og Rafiðnaðarsamband Íslands boðað til fundar með iðnaðarmönnum sem starfa hjá PCC á Bakka. Þar verður sömuleiðis gengið frá kjöri á tveimur  trúnaðarmönnum fyrir iðnaðarmenn. Samtals verða því fjórir trúnaðarmenn starfandi hjá PCC BakkiSilikon hf.,  það er á vinnustað sem telur um 110 starfsmenn.

Hress og mögnuð, framleiðslustarfsmennirnir Sigrún Hildur Tryggvadóttir og Þjóðverjinn Henrik Cater voru kjörin trúnaðarmenn fyrir framleiðslustarfsmenn og starfsmann á skrifstofu PCC á Bakka, það er á fundi sem haldinn var í vikunni að frumkvæði Framsýnar.

Framsýn átti góðan fund með starfsmönnum PCC á Bakka á þriðjudaginn, rúmlega hundrað manns koma til með að starfa hjá fyrirtækinu sem hefur starfsemi í vetur.

Formaður Framsýnar svaraði fyrirspurnum fundarmanna eftir bestu getu en eðlilega var töluvert spurt út í ýmsa þætti er varðar störf trúnaðarmanna, aðbúnað og kjör starfsmanna.

 

Deila á