Að venju bauð Fjáreigendafélag Húsavíkur upp á hrútasýningu á Mærudögum. Fjöldi fólks fylgdist með spennandi keppni sem fór vel fram. Sýndir voru sjö fallegir hrútar og voru tveir þekktir bændur úr Suður-Þingeyjarsýslu fengnir til að dæma keppnina, þeir Sigurður Ágúst Þórarinsson og Guðmundur Ágúst Jónsson. Sveitarstjóri Norðurþings, Kristján Þór Magnússon, sá svo um að lýsa því sem fram fór.
Hrúturinn Krubbur sem kemur frá Félagsbúinu Grobbholti á Húsavík sigraði með miklum yfirburðum. Í máli dómarana kom fram að Krubbur væri sérstaklega holdmikill hrútur með eintaklega góð læri, malir, hrygg og frampart. Í lok keppninnar fengu eigendur Krubbs bikar í verðlaun. Það var ungur áugasamur bóndi, Baldur Freyr Skarphéðinsson, sem tók við verðlaunum fyrir hönd Grobbholts. Þess má geta til viðbótar að tveir áhorfendur voru valdir til að velja þann hrút sem skartaði fallegasta pungnum. Áslaug Guðmundsdóttir og Hróðný Lund voru kallaðar upp og eftir ýtarlega skoðun völdu þær hrútinn Ask með besta undirvöxtinn.