Áskel Örn sigraði Framsýnarmótið

Áskell Örn Kárason vann öruggan sigur á Framsýnarmótinu í skák sem fram fór á dögunum. Áskell vann allar sínar skákir sex að tölu. Haraldur Haraldsson varð í öðru sæti með 5 vinninga og Elsa María Kristínardóttir varð í þriðja sæti með 3,5 vinninga eins og Hermann Aðalsteinsson, en Elsa María varð ofar á stigum. Þess má geta að Elsa María varð efst Huginsmanna, Hermann annar og Sigurður G Daníelsson þriðji með 3 vinninga. Sveinbjörn Sigurðsson varð í þriðja sæti af gestum mótsins með þrjá vinninga, á eftir Áskeli og Haraldi.

Verðlaunahafar á Framsýnarmótinu. Á myndina vantar Sigurð G. Daníelsson

Deila á