Verslunar- og skrifstofufólk innan Framsýnar athugið

Stjórn Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrifstofufólks (SVS) sem Framsýn á aðild að fyrir verslunar- og skrifstofufólk innan félagsins hefur tekið þá ákvörðun að flýta gildistöku ákvæðis nýrra reglna varðandi uppsöfnun á rétti í sjóðinn. Gildistakan varðandi uppsafnaðan rétt átti að taka gildi 1. janúar 2017 en tekur nú gildi 1. janúar 2016. Samkvæmt nýjum reglum SVS gefst félagsmanni sem ekki hefur nýtt sér rétt sinn í starfsmenntasjóð SVS þrjú ár í röð, kostur á að nýta sér styrk allt að 270.000 kr. fyrir einu samfelldu námi. Ekki er hægt að safna upp rétti umfram þá upphæð.

Aukin réttur félagsmanna Framsýnar til starfsmenntastyrkja. Um er að ræða félagsmenn sem starfa í verslunum, söluskálum og á skrifstofum. Það er félagsmenn sem starfa eftir kjarasamningi Landssambands ísl. verslunarmanna og Samtaka atvinnulífsins sem Framsýn á aðild að.

Deila á