Mikill undirbúningur er í gangi vegna hátíðarhaldanna á Húsavík 1. maí. Hópur þekktra listamanna hafa boðað komu sína til Húsavíkur. Þar á meðal er Jóhannes Kristjánsson eftirherma og skemmtikraftur og þá bendir allt til þess að Tína Turner verði á svæðinu, þó ekki hún sjálf en lög eftir hana sem þekktir listamenn munu flytja. Já það verður gargandi stuð í Íþróttahöllinni á Húsavík 1. maí. Að sjálfsögðu verða góðir ræðumenn á svæðinu sem munu láta í sér heyra enda full ástæða til þess. Dagskráin verður auglýst fljótlega eftir páska.![images[2]](http://www.framsyn.is/wp-content/uploads/2015/04/images2-150x150.jpg)
Hópur þekktra listamanna kemur fram á hátíðarhöldunum á Húsavík 1. maí.